Joe vs. Lukas Rossi, this make´s my head spin! Why, why!!!
Nú er helgin á enda og verð ég að segja að hún hafi verið svakaleg!! Eins og þið sjáið á blogginu fyrir neðan þá fór ég í afmæli hjá þeim Ásdísi og Huldu. Fyrst var maður í vandræðum með búning þar sem þetta var búningapartý. Ég, Gísli og Steinar þrusuðum í bæinn í búningaleiguna í Hafnafirði. Ég verð að viðurkenna að við vorum algjörar ljóskur þegar við vorum að reyna að finna helvítis leiguna, keyrðum stanslaust upp og niður götuna og á endanum rákum við augun á risastórt skilti sem á stóð búningaleiga sem við vorum búnir að keyra nokkrum sinnum framhjá (algjörir kjánar) hehe. Steinar var eini gaurinn sem fann sér búning þar og við fórum heim í fýluferð. Á leiðinni heim var ég nokkurn veginn búin að ákveða hvað ég ætlaði að vera, það var enginn annar en Lukas Rossi, þá hringdi ég einfaldlega bara í hana Petru vinkonu mína sem sá um að mála mig og spreyja á mér hárið og var ég mjög ánægður með útkomuna ;).
Svo rann upp Laugardagurinn og var tími til kominn að fara að huga að búningnum, Petra kíkti til mín og byrjaði að mála mig. Það var mjög gaman á meðan á þessu stóð og hlógum við okkur máttlausa. Svo var kominn tími til þess að skella sér í teitið. Þar voru allir í skrautlegum búningum, gaman að sjá hvað sumir voru frumlegir og viljugir að taka þátt í þessu.
Svo seinna um kvöldið var ég (Lukas Rossi sjálfur) kallaður uppá svið af afmælisbörnunum og beðinn um að syngja afmælissönginn fyrir þær (var ekki alveg að búast við þessu) en kallinn nelgdi þetta...
Tveir leikmenn komu og tóku nokkur lög og fóru á kostum.
Stelpurnar stóðu sig vel í veitingunum, það var bjór og bolla í boði og svo völdu þær einnig bestu búningana seinna um kvöldið. Hjördís var í fyrsta og Beta í öðru í kvennaflokki hehe... Og svo enginn annar en Lukas Rossi (ég) í fyrsta og Skúli Steinn a.k.a Púmba í öðru sæti í karlaflokki. Fékk ég rakspýra og snyrtivörur í verðlaun. Strákurinn var beðinn um að taka svo lagið fyrir fólkið, ætlaði að taka eitt lag en endaði svo á því að taka sex lög. 
Ég mæli með svona kvöldum þetta kryddar mikið uppá partýið. Ég fór inná helstu staði bæjarins svona klæddur og gaman að sjá viðbrögð hjá fólki, sumir þekktu mann ekki og aðrir hlógu. Ég vil þakka Petru fyrir farðann, enda snillingur þarna á ferðinni og auðvitað stelpunum fyrir skemmtilegt afmæli og hér sjáiði da hotties...
Komið nóg blogg í bili, sjáumst pakk!!
Lukas out...
11 athugasemdir



































